Davíð Oddsson þú færð mitt atkvæði :)

Ég fagna því ákaft að Davíð Oddsson ætli að bjóða sig fram til forseta Íslands. En nú hlýtur Ólafur Ragnar að draga framboðið sitt til baka, þar sem þessi óvissa í Íslenskum Stjórnmálum sem talað var um, virðist vera yfir staðinn. Davíð Oddsson er maður fólksins, hér að neðan er frétt af mbl.is frá 2003 sem sannar það :)



Inn­lent | mbl | 21.11.2003 | 14:55 | Upp­fært 16:30

Davíð tók inni­stæðu sína út úr Kaupþingi Búnaðarbanka

Davíð Odds­son, for­sæt­is­ráðherra, fór í aðal­banka Kaupþings Búnaðarbanka í Aust­ur­stræti fyr­ir stundu og tók út inni­stæðu sem hann átti þar, eins og hann hafði boðað í viðtali í há­deg­is­frétt­um Rík­is­út­varps­ins. Davíð sagði við Morg­un­blaðið, að hann hefði tekið út reiðufé en hann væri ekki bú­inn að ákveða hvar hann ætlaði að geyma þá.

Davíð sagði í út­varps­viðtali í dag að all­ir, sem væru í viðskipt­um við bank­ann, hlytu að velta fyr­ir sér hvort þeir geti hugsað sér að vera í viðskipt­um við stofn­un, sem hagi sér með þeim hætti sem birt­ist í samn­ing­um sem starf­andi stjórn­ar­formaður og ann­ar for­stjóri bank­ans hafa gert um hluta­fjár­kaup í bank­an­um. Sagðist Davíð eiga 400 þúsund krón­ur inni á bók og ætlaði að taka þá pen­inga út.



Þetta var mikið hita mál í samfélaginu á þessum tíma og var Davíð ganggrindur fyrir þetta sem enginn gaggrýnir í dag. Enda er það fólk sem hæst hafði þá orðið loftlaust í dag enda flúði I, S, G, til Afganistan hehehehe... :)


mbl.is Davíð býður sig fram til forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Þú skilur ekki um hvað þetta fjallar, væni minn. - Taktu sólgleraugun ofan og tappana úr eyrunum og lifðu lífinu. Ef þú hefur skrifan þennan pistil sjálfur, þá ertu væntanlega ekki blindur, er það ?

Már Elíson, 8.5.2016 kl. 17:40

2 Smámynd: Ingimar Eggertsson

Már Elíson Kurteisi kostar ekkert en ókurteisi gæti kostað þig mikið. Hvar sérð þú svo sólgleraugu ? ? ? Þegar menn selja sér hlut á 0,1 þá skil ég vel að mönnum ofbjóði og taki inni­stæðu sína út, ég hefði gert það sama. Enda var hluturinn metin 0,6 en ekki 0,1 þannig að Sigurður Einarsson stjórnarformaður og Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri bankans gáfu sér 770 Milljónir króna. Takk fyrir...

En þetta er kannski of flókið fyrir þig Már Elíson. Því maður skrifar (( skrifað en ekki skrifan )) Sá hlær best sem síðast hlær, og mundu að kurteisi kostar ekkert...

Ingimar Eggertsson, 8.5.2016 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband